Fyrirtækið

ÁB Lagnir ehf. er fjölskyldufyrirtæki stofnað árið 2024 af Árna Baldvini Þórðarsyni, löggiltum pípulagningameistara með áratuga reynslu í jarðlögnum, vatnsveitu og almennum pípulögnum.

Við tökum að okkur bæði lítil og stór verkefni – hvort sem það eru nýbyggingar, endurbætur eða viðgerðir á neysluvatni, ofnakerfum eða skólplögnum. Við leggjum áherslu á fagmennsku, vandaða vinnu og persónulega þjónustu þar sem þörfum hvers viðskiptavinar er sinnt af alúð.

Sem fjölskyldufyrirtæki leggjum við mikla áherslu á traust og langtímasambönd. Við viljum að viðskiptavinir okkar geti verið öruggir um að lagnakerfin þeirra séu í góðum höndum – í dag og til framtíðar.